Hoppa yfir valmynd

Bakvarðasveit velferðarþjónustu – óskað eftir starfsfólki á útkallslista

Félags- og barnamálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga, vinna í sameiningu að því að koma á fót bakvarðasveit í velferðarþjónustu.

Í ljósi atburða síðustu daga og vikna er varðar heimsfaraldur Covid-19 er ljóst að útbreiðsla veirunnar gæti orðið til þess að valda erfiðleikum í veitingu þjónustu og skapað álag á vissum starfstöðvum. Við slíkar aðstæður er brýnt að tryggja lögbundna þjónustu og aðstoð til viðkvæmustu hópanna. Því hefur verið ákveðið að fara af stað með svokallaða bakvarðasveit í velferðarþjónustu þar sem einstaklingar geta skráð sig á lista hafi þeir tök á að ráða sig tímabundið, hvort sem er í fullt starf eða tímavinnu.

Óskað er eftir fólki sem getur starfað í þjónustu við fatlað fólk, aldraða, heimilislausa, börn með sértækar stuðningsþarfir, barnavernd og fjárhagsaðstoð. Reynsla af störfum í velferðarþjónustu er kostur en ekki skilyrði. Hæfniskröfur taka mið af viðkomandi starfi.

Um skráningu í bakvarðasveit velferðarþjónustu

Félagsmálaráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu, hlutastarf eða fullt starf allt eftir því hvað hentar viðkomandi. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á þeirri starfstöð sem um ræðir hverju sinni.  

Sveitarfélög og stofnanir ráðuneytisins

Sveitarfélög sem óska eftir að ráða starfsfólk í gegnum bakvarðasveit velferðarþjónustunnar geta nálgast upplýsingar um liðsauka hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Stofnanir félagsmálaráðuneytisins geta nálgast sömu upplýsingar hjá ráðuneytinu. Stofnanir munu sjálfar hafa samband við bakverði og ráðningarsambandið verður á milli stofnunar / sveitarfélags og viðkomandi aðila.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag ráðninga

  • Tímabil: Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig í allt að tvo mánuði.
  • Laun: Laun taka mið af kjarasamningum viðeigandi stéttarfélags og þess sveitarfélags eða stofnunar sem um ræðir hverju sinni. 
  • Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa: Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum. Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði viðeigandi kjarasamninga.
  • Hvar skráir fólk sig í bakvarðasveitina: Skráning í bakvarðasveit
  • Hvernig verður staðið að ráðningum: Þau sveitarfélög sem óska eftir að ráða starfsfólk úr bakvarðarsveit velferðarþjónustunnar nálgast upplýsingar um liðsauka hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Stofnanir félagsmálaráðuneytisins geta nálgast sömu upplýsingar hjá ráðuneytinu. Stofnanir munu sjálfar hafa samband við bakverði og ráðningarsambandið verður á milli einstaklingsins og viðeigandi stofnunar eða sveitarfélags eftir því sem við á hverju sinni.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics