Hoppa yfir valmynd

Samkomulag um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem fá COVID-19

Ásmundur Einar Daðason - mynd

Að tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, hafa Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum. Samkomulagið er afturvirkt frá 15. mars og gildir til og með 31. maí.

Samkvæmt samkomulaginu geta bændur sem veikjast af COVID-19 ráðið til sín starfsfólk tímabundið sem verktaka til að sinna afleysingum, að hámarki í 14 daga. Búnaðarsambönd deila verktökum niður, hvert á sínu svæði, og sjá um greiðslur til þeirra. Leitast verður eftir að ráða verktaka úr hópi einstaklinga sem eru skráðir atvinnuleitendur í viðkomandi umdæmi.

Bændasamtök Íslands halda saman útgjöldum búnaðarsambandanna vegna þessa verkefnis auk þess sem þau fá greiddan fjárstuðning til sín og hafa milligöngu um uppgjör við búnaðarsamböndin þegar verkefninu er lokið. Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga mun standa undir fjárstuðningi til Bændasamtaka Íslands og útgjöld vegna þessa verkefnis verða gjaldfærð hjá sjóðnum.

Uppgjör milli Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga og Bændasamtaka Íslands skal lokið fyrir 1. júlí 2020.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Bændur eru ekki undanskildir áhrifum af COVID-19 og það getur haft mikil áhrif á afkomu þeirra til frambúðar ef þeir veikjast og geta ekki sinnt bústörfum. Það er því gríðarlega mikilvægt að við stígum inn í og hjálpum þeim að tryggja áframhaldandi starfsemi á sínum búum. Þetta á sérstaklega við núna þegar styttist í að sauðburður hefjist ásamt því  að bændur eru almennt að sinna vorverkum sem leggja grunninn að framleiðslu ársins. Á þessum tímum er því enn mikilvægara að styðja vel við þá, og tryggja þannig að við höldum áfram að framleiða allan þann mat í landinu sem við sem þjóð getum.”

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics