Hoppa yfir valmynd

Bílar ríkisins verða umhverfisvænir

Allir bílar ríkisins verða vistvænir, nema öryggis- eða notkunarkröfur krefjist annars, samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar. Ríkið rekur nú um 800 bifreiðar af öllum stærðum og gerðum.

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum fyrir helgi að innleiða nýja stefnu sem tryggir að ríkisstofnanir kaupi umhverfisvænni bíla sem einnig eru hagkvæmir, en innleiðing vistvænni ökutækja er á meðal aðgerða á aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.

Til þess að innleiða nýja stefnu er lagt til nýtt verklag, sem Ríkiskaup og bílanefnd bera ábyrgð á. Í því felst að fá sérfræðinga til þess að útfæra útboðslýsingar sem ná yfir þarfir meirihluta ríkisaðila með það að markmiði að skila vistvænum og hagkvæmum bifreiðum. Þeim stofnunum sem stefna að því að kaupa bifreið verði skylt að taka þátt í sameiginlegum útboðum þar sem útboðslýsingarnar tryggja að keyptar verði vistvænar og hagkvæmar bifreiðar.

Meginreglan verður að bifreiðar verði vistvænar í öllum tilfellum þar sem starfsemi stofnana krefst ekki annarra kosta.

Með aðgerðunum má draga úr heildarlosun ríkisins vegna ökutækja á skömmum tíma. Að auki er rekstrarkostnaður vistvænna bifreiða lægri og heildarlíftímakostnaður og vistferilskostnaður tækjanna minni. Gera má ráð fyrir að stofnkostnaður bifreiðakaupa hækki en innkaupsverð vistvænna ökutækja er í mörgum tilvikum hærra en verð hefðbundinna ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, þrátt fyrir hagkvæmari opinbera gjaldtöku af vistvænum ökutækjum. Sameiginlegum útboðum er ætlað að ná fram besta mögulega verði.

Ríkisstjórn hefur þegar samþykkt að ráðherrabifreiðar verði rafvæddar.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics