Hoppa yfir valmynd

Norðurslóðir í brennidepli á fundi utanríkisráðherra Íslands og Finnlands

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, og Guðlaugur Þór Þórðarson á málþinginu í dag.  - myndUtanríkisráðuneytið

Tvíhliða samskipti Íslands og Finnlands, málefni norðurslóða, Norðurlandasamstarfið, Evrópumál og öryggis- og varnarmál voru á meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, á fundi þeirra fyrr í dag sem fram fór á Síldarminjasafninu á Siglufirði. Soini, sem er staddur hér á landi í vinnuheimsókn, kynnti sér jafnframt atvinnulíf  og starfsemi fyrirtækja á Tröllaskaga.

Málefni norðurslóða og Norðurskautsráðsins voru ofarlega á baugi í heimsókninni, en Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu af Finnlandi í maí. Ráðherrarnir sóttu síðdegis sérstakt málþing í Háskólanum á Akureyri um norðurslóðir þar sem gerð var grein fyrir því þróttmikla starfi sem háskólinn og stofnanir á Akureyri inna af hendi og tók fjölmenni þátt í skoðanaskiptum við ráðherrana. Guðlaugur Þór hélt ávarp á málþinginu þar sem hann gerði meðal annars grein fyrir undirbúningi fyrir formennsku Íslands að Norðurskautsráðinu. Þar verður leiðarljósið sjálfbærni í efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu tilliti og áherslum beint að hafinu, umhverfisvænum orkulausnum og styrkingu samfélaga á norðurslóð. 

„Samskipti Íslands og Finnlands eru sérlega náin og góð, og málefni norðurslóða og Norðurskautsráðsins eru okkur afar hugleikin nú þegar Ísland tekur senn við keflinu af Finnlandi. Því var kærkomið að heimsækja Akureyri sem er hin eiginlega norðurslóðamiðstöð okkar Íslendinga og kynnast því merka starfi sem þar fer fram. Þá er ávallt gaman að varpa ljósi á lífið utan höfuðborgarsvæðisins. Að þessu sinni kynntum við okkur þá uppbyggingu sem á sér stað á Siglufirði og víðar á Tröllaskaganum, og kunnum við heimafólki bestu þakkir fyrir höfðinglegar móttökur,“ sagði Guðlaugur Þór.

Að loknu málþinginu sóttu ráðherrarnir svo móttöku bæjarstjórans á Akureyri í fræðslusetrinu Norðurslóð. 

Utanríkisráðherra Finnlands fer af landi brott á morgun. Áður en hann heldur til síns heima skoðar hann Alþingishúsið og hittir utanríkismálanefnd þingsins. Í gær heimsótti Soini Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á Bessastöðum. 


 

  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 2
  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 3

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics