Hoppa yfir valmynd

Afhending trúnaðarbréfs

Hannes Heimisson, sendiherra, afhenti þann 23. f.m. Valdas Adamkus, forseta Litháen, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Litháen, með aðsetri í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Vilníus, höfuðborg landsins.

Í viðræðum við forseta Litháen lagði sendiherra áherslu á náinn vinskap þjóðanna og vaxandi samskipti, bæði á vettvangi stjórnmála og viðskipta. Forseti Litháen tók undir þetta og þakkaði Íslendingum fyrir mikilvægan stuðning á þeim fimmtán árum er liðin væru frá því að Litháen endurheimti sjálfstæði sitt að nýju. Fjöldi íslenskra fyrirtækja hefur haslað sér völl í Litháen á undanförnum árum og getið sér gott orðspor.

Sendiherra átti einnig fundi með ýmsum ráðamönnum í Litháen, þar sem rædd voru bæði tvíhliða samskipti ríkjanna og ýmis alþjóðamál.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics