Hoppa yfir valmynd

Aðalræðisskrifstofan verður lokuð frá og með 23. mars nk. vegna COVID-19

Aðalræðisskrifstofa Íslands í New York verður lokuð frá og með 23. mars nk. vegna COVID-19. Opið verður fyrir Íslendinga sem þurfa á neyðarvegabréfaþjónustu að halda en ekki verður opið fyrir almennar vegabréfsumsóknir eða heimsóknir. 

Skiptiborð skrifstofunnar verður áfram opið frá 9-17:00 virka daga í síma +1 646 282 9360 og hægt er að ná í starfsfólk skrifstofunnar með því að senda tölvupóst á [email protected]. Spurningar varðandi heimferð til Íslands er jafnframt hægt að senda á [email protected] eða með því að senda skilaboð á Facebook síðu ráðuneytisins sem þjónustar Íslendinga allan sólarhringinn.

Ef um neyðartilfelli er að ræða þá skal haft samband við neyðarsíma Utanríkisráðuneytisins í +354 545 0112, í tölvupóstfangið [email protected] eða senda skilaboð á Facebook síðu ráðuneytisins.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics