Hoppa yfir valmynd

Fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fréttamenn opnuð

Íslensk stjórnvöld opnuðu í morgun fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fréttamenn en um þrjátíu erlendir fréttamiðlar hafa boðað komu sína til Íslands vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um Icesave-lögin. Flestir eru frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Hollandi, en einnig koma fréttamenn lengra að, svo sem frá Bandaríkjunum, Kína og Japan.
Utanríkisráðuneytið hefur umsjón með miðstöðinni sem staðsett er á 2. hæð í Iðnó.Gert er ráð fyrir að hún verði opin fram á sunnudagskvöld.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics