Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja funda í Þórshöfn

OS-og-JN-Thorshofn-1-juli-2010
OS-og-JN-Thorshofn-1-juli-2010

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur í dag til Þórshafnar, þar sem hann mun eiga fund með Jørgen Niclasen, utanríkisráðherra Færeyja á morgun, 1. júlí. Um er að ræða fund Hoyvíkurráðsins, sem sett var á stofn með Hoyvíkursamningnum, fríverslunarsamningi Íslands og Færeyja.

Helsta málið á dagskrá fundarins er rekstur Hoyvíkursamningsins. Einnig verður fjallað um samskipti landanna við ESB og EFTA, auk þess sem rætt verður um samstarf á sviði heilbrigðismála og ýmis önnur mál er varða hagsmuni landanna.

Þá undirrita utanríkisráðherrarnir samkomulag um samstarf á milli utanríkisráðuneytis Íslands og Færeyja á sviði rekstrarmála. Samkomulaginu er ætlað að vera grundvöllur að stuðningi og ráðgjöf Íslendinga við uppbyggingu utanríkisþjónustu Færeyinga.

Hoyvíkursamningurinn hefur verið í gildi í á fjórða ár og er víðtækasti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert. Samningurinn varðar ekki aðeins hefðbundin viðskipti, heldur er með honum stefnt að auknu samstarfi á m.a. sviðum menningarmála, orkumála, umhverfismála, heilbrigðismála, fjarskipta og ferðaþjónustu.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics