Hoppa yfir valmynd

Ráðherra í pallborði OECD um stöðu kvenna á vinnumarkaði

Gunnar Bragi hjá OECD

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra gerði þátt karla í því að vinna að kynjajafnrétti að umtalsefni á pallborðsumræðum um stöðu kvenna á almennum og opinberum vinnumarkaði, sem Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, stendur fyrir í París í dag. Umræðurnar eru hluti ráðherrafundar stofnunarinnar, sem stendur fram á fimmtudag. 


Í umræðunum lagði Gunnar Bragi áherslu  á að karlar tækju þátt í umræðunni um kynjajafnrétti og nefndi sem dæmi  rakarastofuráðstefnuna sem Ísland og Súrínam stóðu fyrir hjá Sameinuðu þjóðunum í janúar sl. Hann sagði samfélög þurfa á vinnuframlagi kvenna og karla að halda og þess þyrfti að sjá merki m.a. í stuðningi við fjölskyldur.  Þar væri feðraorlof stór áhrifaþáttur og miklu skipti að karlar í ábyrgðarstöðum tækju slíkt orlof til að setja gott fordæmi. 

Þá sagði hann að ríki heims og stofnanir gætu og ættu að gera sitt og nefndi sem dæmi að hann vildi sjá mun fleiri konur í áhrifastöðum hjá Sameinuðu þjóðunum. 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics