Hoppa yfir valmynd

Kallað eftir umsóknum frá félagasamtökum til  verkefna á sviði  þróunarsamvinnu og neyðar- og mannúðaraðstoðar 

Lítið barn fær vítamín
UNICEFNYHQ2012-0481CHRISTINE-NESBITT

Utanríkisráðuneytið tekur á móti umsóknum um styrki til félagasamtaka tvisvar á ári samkvæmt  verklagsreglum um samstarf utanríkisráðuneytisins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við frjáls félagasamtök sem starfa að þróunarsamvinnu, mannúðarstörfum og neyðaraðstoð á alþjóðavettvangi frá 2012.  Í verklagsreglunum er kveðið á um skilyrði fyrir styrkveitingum og viðmið við mat umsókna. 

Sækja má um styrk til verkefna sem unnin eru í eigin nafni, verkefna sem vinnast í samstarfi við samtök í móttökulandinu og til verkefna á vegum alþjóðlegra samtaka. 

Um er aðræða síðari úthlutun árið 2014. Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum. 

Umsóknareyðublað og verklagsreglurnar ásamt leiðbeinandi gögnum  er að finna á vef utanríkisráðuneytisins.

Umsóknir skulu sendar á netfangið: felagasamtok.styrkir [hja] utn.stjr.is fyrir  15. september nk. 

Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Aðalsteinsdóttir í síma 545 7435, netfang: svanhvit [hja] mfa.is


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics