Hoppa yfir valmynd

Upplýsingar til flugfarþega vegna eldgossins

Eldgosið í Eyjafjallajökli veldur því að margir erlendir ferðamenn og Íslendingar búsettir í útlöndum hafa ekki komist til síns heima á réttum tíma. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins vill beina þeim tilmælum til fólks að fylgjast náið með tilmælum flugfélaga og ferðaskipuleggjenda. Hægt er að nálgast upplýsingar frá íslenskum flugfélögum og flugmálayfirvöldum hér (http://www.kefairport.is/English/News/721/Flights-between-Europe-and-Iceland-affected-by-volcanic-activity-/default.aspx). Þá er mikilvægt að kynna sér upplýsingar um réttindi flugfarþega sem finna má á heimasíðu Flugmálastjórnar                      (http://www.caa.is/Flugmalastjorn/Frettir/Frett/213).

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics