Hoppa yfir valmynd

Samþykkt að skrifstofa Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar flytjist til Akureyrar

Alþjóðlega norðurskautsvísindanefndin (IASC) samþykkti á fundi sínum í Fairbanks í Alaska í gærkvöldi að skrifstofa nefndarinnar flytjist til Akureyrar frá Þýskalandi um næstu áramót. Ríkisstjórn Íslands ákvað um miðjan febrúar, að tillögu forsætisráðherra, að veita fjármagni til reksturs hennar til næstu 5 ára.

Markmið Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar er að stuðla að samstarfi um rannsóknir á norðurslóðum og að veita ráðgjöf til stjórnvalda um málefni þeirra. Stofnunin leiðir saman opinberar rannsóknarstofnanir og -samtök frá 23 löndum og hefur skipað sér sess sem einn mikilvægasti alþjóðlegi samstarfsvettvangurinn um rannsóknir og vöktun á norðurslóðum.

Á Akureyri eru þegar til staðar nokkrar stofnanir um málefni norðurslóða. Má þar nefna Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, skrifstofur Norðurskautsráðsins: PAME (Protection of the Arctic Marine Environment) og CAFF (Conservation of Arctic Fauna and Flora), og Norðurslóðanet Íslands. Á Akureyri starfar einnig sérhæft fyrirtæki, Arctic Portal, við söfnun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga um norðurslóðir. Á Akureyri er því öflugt norðurslóðasamfélag undir einu þaki sem gæti skapað ýmiss konar samvirkni við IASC skrifstofuna.

Frá upphafi hefur Rannís átt aðild að IASC fyrir hönd Íslands. IASC hefur áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu og gegnir mikilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga frá vísindasamfélaginu til ráðsins um niðurstöður rannsókna á náttúru- og samfélagsbreytingum á norðurslóðum.

Skrifstofa norðurskautsvísindanefndarinnar hefur frá árinu 2009 verið staðsett í Potsdam í Þýskalandi en áður hefur skrifstofa IASC verið staðsett í Svíþjóð og Noregi. Skrifstofan er ábyrg fyrir daglegri starfsemi IASC.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics