Hoppa yfir valmynd

Bréf fjármála- og efnahagsráðherra til stjórnar Bankasýslu ríkisins vegna umræðu um sölu Landsbankans á hlut í Borgun

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent meðfylgjandi bréf til stjórnar Bankasýslu ríkisins vegna umræðu um sölu Landsbankans á hlut hans í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun:

Eins og kunnugt er hefur á opinberum vettvangi farið fram umræða um sölu Landsbankans á hlut hans í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun. Samkvæmt upplýsingum og gögnum sem vísað hefur verið til í þeirri umræðu má ætla að það verð sem bankinn fékk fyrir eignarhlut sinn hafi verið mun lægra en eðlilegt getur talist. Jafnframt hefur verið gagnrýnt að við sölumeðferð bankans á hlutnum hafi ekki verið gætt að sjónarmiðum um gagnsæi og jafnræði. Er sú staða sem upp er komin alvarleg, en Landsbankinn er í senn stærsta fjármálafyrirtæki landsins og verðmætasta félag íslenska ríkisins.

Bankasýsla ríkisins „fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma“, eins og fram kemur í lögum um hana. Stofnuninni var komið á fót til að ríkið væri trúverðugur eigandi fjármálafyrirtækja og að tryggt væri að ekki yrðu höfð pólitísk afskipti af rekstri slíkra fyrirtækja.

Þótt aðkoma fjármála- og efnahagsráðherra að daglegum málefnum einstakra fjármálafyrirtækja í ríkiseigu sé verulega takmörkuð að lögum, er honum ætlað að setja félögunum eigendastefnu þar sem gerð er grein fyrir almennri stefnumörkun eiganda. Í samræmi við það hefur fjármálafyrirtækjum í eigu ríkisins verið sett sérstök eigendastefna sem gildir um öll þau félög sem Bankasýslan fer með eignarhlut í. Kjarni stefnunnar byggir á að umrædd fjármálafyrirtæki séu rekin með faglegum og gagnsæjum hætti þannig að almennt ríki traust á stjórn og starfsemi. Í eigendastefnunni er sérstaklega áskilið að fjármálafyrirtæki skuli koma sér upp innri verkferlum um lykilþætti í starfsemi sinni, þ.m.t. sölu eigna og að mikilvægt sé að slíkir ferlar séu skilvirkir og gagnsæir.

Að undanförnu hefur staðið yfir í fjármála- og efnahagsráðuneytinu endurskoðun á eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki og er þar m.a. gert ráð fyrir að hert verði á kröfum við sölu á eignum þeirra fjármálafyrirtækja sem stefnan nær til. Má í því sambandi vísa til þess að Alþingi hefur með lögum um opinber fjármál lögfest meginreglur um sölu eigna ríkisins þar sem segir að gæta skuli að jafnræði, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni við sölu eigna ríkisins, auk þess sem líta skuli til samkeppnissjónarmiða.

Bankasýsla ríkisins birti þann 8. janúar sl. stöðuskýrslu varðandi fyrirhugaða sölumeðferð á Landsbankanum í samræmi við heimild í fjárlögum. Í skýrslunni kemur fram að Bankasýslan stefni að því að setja fram tillögu til ráðherra á fyrsta fjórðungi þessa árs um sölu á allt að 28,2% hlut í Landsbankanum. Ákvörðun um næstu skref varðandi sölu eignarhluta í Landsbankanum verður fyrst tekin að fengnum tillögum Bankasýslunnar, en ljóst er að sú ákvörðun mun velta á fjölmörgum atriðum og mati á því hvernig heildarhagsmunum ríkisins er best fyrir komið. Það er mat ráðherra að umræða undanfarinna vikna vegna sölu Landsbankans á hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða bankann. Því sé nauðsynlegt áður en lengra er haldið í því ferli að hvaðeina er máli skiptir og varðar sölu Landsbankans á Borgun verði upplýst og málið afgreitt með þeim hætti að traust til bankans og stjórnenda hans verði tryggt. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis er sent afrit af bréfi þessu, sbr. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins, með síðari breytingum.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics