Hoppa yfir valmynd

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnir drög að samningi um aðild 10 nýrra ríkja að EES

Nr. 060

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Í dag kynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins drög að samningi um aðild 10 nýrra ríkja að EES, fyrir aðildarríkjum ESB. Ætlunin er að hann taki gildi á sama tíma og aðildarsamningur ríkjanna við ESB, þann 1. maí 2004. Við aðild nýrra ríkja að EES falla úr gildi þeir fríverslunarsamningar sem EFTA hafði áður við átta ríkjanna.
Samningurinn er talinn ásættanlegur fyrir Ísland og skiptir þar miklu að frosin síldarsamflök verða endurflokkuð í tollskrá ESB þannig að þau hljóta sömu tollameðferð og frosin síldarflök. Með nýjum þróunarsjóði EFTA sem stofnaður er í tengslum við stækkunina er lögð áhersla á að hægt verði að styrkja verkefni á sviðum þar sem EES/EFTA ríkin hafa reynslu og þekkingu, svo sem á sviði sjávarútvegs, hagnýtingu jarðhita og orkuvinnslu.
Stefnt er að áritun endanlegs texta samningsins í lok júnímánaðar og er vonast til að undirritun geti átt sér stað í júlí. Enn er þó eftir formlegt samráð vegna samningstextans við Evrópuþingið og er því hugsanlegt að undirritun dragist fram í september.
Mikil áhersla er lögð á að undirritun fari fram sem fyrst þar sem þegar er hafinn, í tilvonandi og núverandi aðildarríkjum Evrópusambandsins, undirbúningur til fullgildingar stækkunarsamnings ESB.
Áætlað er að leggja fram frumvarp til laga til breytinga á EES-samningnum, vegna stækkunar, á 130. löggjafarþingi.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 12. júní 2003


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics