Hoppa yfir valmynd

Frestur til að sækja um framlag til neyðaraðstoðar rennur út 15. september

Utanríkisráðuneytið gerir ráð fyrir ákveðnu framlagi til neyðar- og mannúðaraðstoðar á vegum frjálsra félagasamtaka á fjárlögum, sem úthlutað er tvisvar á ári, vor og haust. Næsti frestur til að sækja um slíkan styrk rennur út 15. september nk.

Sérstakar verklagsreglur utanríkisráðuneytisins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands kveða á um skilyrði fyrir styrkveitingum og viðmið við mat umsókna. Samkvæmt reglunum skulu félagasamtök sem óska stuðnings uppfylla eftirfarandi skilyrði:

      Vera löglega skráð á Íslandi, ekki rekin í hagnaðarskyni og hafa starfað minnst í tvö ár.

      Félagsmenn eða styrktaraðilar séu minnst 30 talsins.

      Hafa sett sér lög, hafa stjórn og stjórnarformann.

      Hafa lagt fram ársreikninga með undirskrift löggilts endurskoðanda undangengin tvö ár.

      Hafa reynslu af störfum í þróunarríkjum eða starfa náið með samtökum, alþjóðlegum eða innlendum, sem búi yfir slíkri reynslu.

      Að félagasamtökin taki tillit til jafnréttissjónarmiða í starfi sínu á vettvangi.

Sækja má um styrk til verkefna sem unnin eru í eigin nafni, verkefna sem vinnast í samstarfi við samtök í móttökulandinu og til verkefna á vegum alþjóðlegra samtaka. Styrkþegi skal ef kostur er taka virkan þátt í verkefninu ef þriðji aðili innir þau af hendi. Slík hlutdeild getur falist í undirbúningi, eftirliti, úttekt eða útsendu starfsliði. Styrkveitendur áskilja sér rétt til að kalla eftir viðbótargögnum ef þörf krefur.

Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum.  Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef utanríkisráðuneytisins:

Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Aðalsteinsdóttir í síma 545 7435, netfang: [email protected]

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics