Hoppa yfir valmynd

Ban Ki-moon ávarpar ráðstefnu um arfleifð og áhrif Höfðafundarins

Ráðstefna í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjov í Höfða, verður haldin í Háskóla Íslands, laugardaginn 8. október nk. Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, mun ávarpa ráðstefnuna, sem ber yfirskriftina Arfleifð og áhrif leiðtogafundarins.  Á ráðstefnunni, sem er öllum opin á meðan húsrúm leyfir, verður horft til áhrifa hans á alþjóðavísu og heima fyrir  en fundurinn er af mörgum talinn hafa markað upphafið að endalokum kalda stríðsins. Þá verður horft fram á við og rætt um helstu áskoranir í alþjóðamálum.

Opnunarávörp flytja Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Íslands. Fyrirlesarar verða Albert Jónsson sendiherra og Silja Bára Ómarsdóttir, aðjunkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, og pallborðsumræður verða að loknum fyrirlestrum þeirra. 

Utanríkisráðuneytið stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Reykjavíkurborg og HÖFÐA Friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Hún verður haldin í Hátíðarsal Háskóla Íslands, nk. laugardag frá kl. 15:00 – 18:00, og fer fram á íslensku og ensku. 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics