Þungar áhyggjur af afleiðingum tilskipunar Bandaríkjaforseta
Guðlaugur Þór segir jafnframt að íslenskir ríkisborgarar, sem upprunir eru frá einhverjum þessara landa sem falli undir tilskipun Bandaríkjaforseta, muni hljóta fullan stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar komi til þess að þeim verði meinuð innganga í Bandaríkin á grundvelli uppruna síns. Þá muni íslensk stjórnvöld koma athugasemdum og afstöðu á framfæri við bandarísk stjórnvöld með skýrum hætti.