Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins lokið

Utanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsríkjanna - myndUtanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, lagði áherslu á mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu og frjálslynd og lýðræðisleg gildi á utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Stokkhólmi í dag.

Minntist ráðherra stofnunar Eystrasaltsráðsins fyrir rúmum aldarfjórðungi. Ferskir vindar og háleitar vonir einkenndu þessa tíma og við getum enn verið vongóð og unnið að velsæld og framförum í okkar heimshluta. Árangursrík samvinna, líkt og innan Eystrasaltsráðsins, hefur hvað eftir annað sannað gildi sitt," sagði Guðlaugur Þór meðal annars í ræðu sinni.



Utanríkisráðherra minntist einnig 25 ára afmælisfundar Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Reykjavík á síðasta ári í formennsku Íslands og var fyrsti ráðherrafundur ráðsins eftir að átök í Úkraínu brutust út fyrir hartnær fimm árum. "Þar tókst okkur að endurvekja hið pólitíska samband á ráðherrastigi og eiga hreinskiptið og nauðsynlegt samtal," sagði Guðlaugur Þór ennfremur.

Á fundinum samþykktu utanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsins ráðherrayfirlýsingu þar sem meðal annars er vísað til vinnu sérfræðingahóps sem skilað hefur tillögum sínum um bætta starfshætti Eystrasaltsráðsins til framtíðar. Þá tók Lettland formlega við formennsku í Eystrasaltsráðinu af Svíþjóð og mun leiða starfið næsta árið.

Í Eystrasaltsráðinu eiga sæti Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Rússland, auk Evrópusambandsins.

Á morgun sækir utanríkisráðherra fund utanríkisráðherra Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og svonefndra Visegrad-ríkja, þ.e. Póllands, Ungverjalands, Tékklands og Slóvakíu. Sá fundur fer einnig fram í Stokkhólmi. 

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics