Hoppa yfir valmynd

Viðtalstími sendiherra Íslands í Stokkhólmi

Nr. 076

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Svavar Gestsson sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 9. september nk. kl. 9:00 - 12:00. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Albaníu, Bangladess, Búlgaríu, Serbíu-Svartfjallalands, Pakistan og Sri Lanka.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 9900 þar sem tímapantanir eru einnig skráðar



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 1. september 2003


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics