Hoppa yfir valmynd

Útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins á Akureyri

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að opna útibú frá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins á Akureyri.

Til að byrja með er gert er ráð fyrir fjórum starfsmönnum á Akureyri sem starfa munu í fjarvinnslu frá þýðingamiðstöðinni, sem staðsett er í Reykjavík. Áætlað er að starfsemin á Akureyri geti hafist í byrjun apríl.

Álag á þýðingamiðstöðina hefur aukist mjög á síðastliðnum árum og er opnun útibúsins liður í að styrkja starfsemina svo standa megi meðal annars við skuldbindingar Íslands gagnvart EES-samningnum.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics