Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja ræða EFTA og norrænt samstarf

Gunnar Bragi og Poul Michelsen. - mynd

Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja, Gunnar Bragi Sveinsson og Poul Michelsen, áttu í dag sinn fyrsta formlega fund eftir að ný stjórn tók við völdum í Færeyjum í september s.l. Ráðherrarnir ræddu vítt og breitt um samstarf Íslands og Færeyja og lögðu áherslu á mikilvægi þeirrar nánu samvinnu sem væri á milli landanna.

Að öðru leyti ræddu ráðherrarnir stefnu nýrrar stjórnar Færeyja á sviði utanríkismála sem m.a. snýr að því að auka þátttöku Færeyja í alþjóðlegu samstarfi. Var þar sérstaklega rætt um norrænt samstarf, þróunarsamvinnu og mögulega aðild að EFTA. Gunnar Bragi skýrði frá því að Ísland horfði almennt jákvætt til þessarar stefnumótunar og myndi fylgja því eftir á viðeigandi vettvangi að skoða vandlega hvernig unnt væri að mæta óskum Færeyinga.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics