Hoppa yfir valmynd

Rýnifundi um hugverkaréttindi lokið

Rýnifundi um 7. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, hugverkaréttindi, lauk í Brussel í dag. Á fundinum, sem stóð í einn dag, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla. Fyrir íslenska hópnum fór Bryndís Kjartansdóttir, formaður samningahóps um EES I málefni en 7. kafli er hluti af EES-samningnum og flestar gerðir Evrópusambandsins á sviðinu eru þegar innleiddar. Þrjár umfangsmiklar gerðir falla ekki undir samninginn; reglugerðir um Evrópumerki og Evrópuhönnun og tilskipun um fullnustu hugverkaréttinda. Ekki var rætt um undanþágur, aðlaganir eða sérlausnir um hugverkaréttindi.

Greinargerð samningahópsins sem fjallar um hugverkaréttindi (EES I) hefur verið birt á heimasíðunni esb.utn.is en í henni er að finna nánari útlistun á viðfangsefni kaflans. Hægt er að opna greinargerðina með því að smella hér.

* * *

Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í alls 33 kafla, auk kafla um stofnanir og önnur mál. Áður en eiginlegar samningaviðræður hefjast um einstaka kafla fer fram rýnivinna þar sem löggjöf Íslands og ESB er borin saman til að greina hvar íslensk löggjöf er frábrugðin og hvað semja þarf um. Tveir rýnifundir munu fara fram um flesta samningskafla. Á þeim fyrri kynnir framkvæmdastjórnin löggjöf ESB og á þeim síðari kynnir Ísland sína löggjöf. Í þeim köflum sem falla undir EES-samninginn og þar sem regluverkið hefur að öllu leyti verið tekið upp af Íslands hálfu, verður aðeins um einn fund að ræða.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics