Hoppa yfir valmynd

Afhending trúnaðarbréfs

Dr. Gunnar Pálsson, sendiherra, afhenti í dag 29. nóvember 2007, Sellapan Ramanathan, forseta Lýðveldisins Singapúr trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Singapúr með aðsetur í Nýju Delí.

Að athöfninni lokinni ræddu forsetinn og sendiherrann almennt um samskipti ríkjanna, þar á meðal möguleika á að auka gagnkvæm viðskipti. Einnig lýsti forsetinn sérstökum áhuga á mögulegu samstarfi rannsóknastofnanna á Íslandi og í Singapúr á sviði loftslagsbreytinga.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics