Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherra fundar með forseta og utanríkisráðherra Króatíu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fundi með utanríkisráðherra Króatíu, Gordan Jandrokovic, og forseta landsins, Ivo Josipovic, í Zagreb þar sem utanríkisráðherra er í opinberri heimsókn. Þá heimsótti utanríkisráðherra króatíska þingið og ræddi við forseta þess.

OS-opg-GJ-eftir-undirritunÁ fundi utanríkisráðherranna voru rædd tvíhliða samskipti ríkjanna, umsókn Íslands og Króatíu um aðild að Evrópusambandinu og samstarf innan alþjóðastofnana, m.a. Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins. Þá gerði utanríkisráðherra grein fyrir stöðu efnahagsmála á Íslandi, m.a. samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Í lok fundarins undirrituðu utanríkisráðherrarnir tvísköttunarsamning milli ríkjanna.

Bæði utanríkisráðherra og forseti Króatíu lýstu áhuga á samstarfi við Íslendinga í jarðhitamálum en fyrirhuguð jarðhitaverkefni í Króatíu bjóða upp á talsverða möguleika að nýta íslenska reynslu og þekkingu. Var utanríkisráðherra í dag viðstaddur undirritun samings verkfræðistofunnar Eflu og Energy Institute Hrovje Poža-stofnuninnar um ráðgjöf í jarðhitamálum.

Á morgun, miðvikudag, kynnir utanríkisráðherra sér starfsemi fiskeldisfyrirtækis á eyjunni Ugljan áður en haldið verður til Búdapest þar sem síðari hluti heimsóknar hans fer fram.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics