Hoppa yfir valmynd

Ríkissjóður kaupir eigin bréf fyrir 24 milljarða króna

Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 24 ma.kr. Um er að ræða óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20, RIKB 22, RIKB 25 og RIKB 31 fyrir samtals um 22,5 ma.kr. að nafnvirði og í flokknum RIKS 21 fyrir um 0,3 ma.kr. að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fer fram í dag.

Heildarkaupverð bréfanna með áföllnum vöxtum nemur um 25 ma.kr. Kaupin eru annars vegar fjármögnuð með andvirði stöðugleikaeigna eða 17,5 ma.kr. og hins vegar með lækkun á almennri sjóðsstöðu ríkissjóðs um 7,5 ma.kr. Ríkissjóður mun í kjölfarið innleysa bréfin og lækka útistandandi skuldir um samsvarandi fjárhæð.

Eftir þessi viðskipti nema heildarskuldir ríkissjóðs um 843 ma.kr., eða sem samsvarar rétt rúmlega 30% af landsframleiðslu. Hrein staða ríkissjóðs reiknuð á grundvelli laga um opinber fjármál, þ.e. þegar sjóðir og innstæður eru dregnar frá heildarskuldum, nemur eftir viðskiptin um 653 ma.kr., eða sem nemur um 23% af VLF.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics