Hoppa yfir valmynd

Íslensk stjórnvöld fordæma árás í Kabúl

Nr. 046

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

 

Íslensku friðargæsluliðarnir sem hlutu áverka í sprengjuárás í miðborg Kabúl í gær dvöldu á hersjúkrahúsi í útjaðri borgarinnar í nótt. Líðan þeirra er góð. Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega sprengjuárásina í Kabúl í gær og yfirlýsingu Talibana í kjölfar hennar í garð erlendra friðargæslusveita í Afganistan sem eru þar í umboði Sameinuðu þjóðanna við endurreisnarstarf í landinu.

 

Utanríkisráðuneytið

Reykjavík, 24. október 2004.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics