Hoppa yfir valmynd

Nr. 067, 18. ágúst 1999. Árni Magnússon ráðinn aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 067


Árni Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra og tekur hann til starfa 1. september næstkomandi.

Árni er 34 ára og lauk prófi frá Samvinnuskólanum að Bifröst 1983. Hann hefur undanfarin rúm fjögur ár gegnt starfi aðstoðarmanns Finns Ingólfssonar iðnaðar- og viðskiptaráðherra en starfaði áður við blaða- og fréttamennsku.

Árni er kvæntur Eddu Björgu Hákonardóttur förðunarfræðingi. Þau eiga fimm börn og búa í Hveragerði.




    Utanríkisráðuneytið
    Reykjavík, 18. ágúst 1999.



    Tags

    Contact us

    Tip / Query
    Spam
    Please answer in numerics