Hoppa yfir valmynd

Utanríkisráðherra situr utanríkisráðherrafund NATO Í Brussel

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, tók í morgun þátt í reglubundnum utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Dagskrá fundarins tók mið af leiðtogafundi bandalagsins sem fram fer í Búkarest í næsta mánuði, og var kastljósinu einkum beint að fyrirhugaðri stækkun bandalagsins, samskiptum við ríki utan NATO, aðgerðum alþjóðasamfélagsins í Afganistan og stöðuna í Kosovó í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar.

Á fundinum lýsti utanríkisráðherra jákvæðri afstöðu íslenskra stjórnvalda til þess að veita Króatíu, Albaníu og Makedóníu aðild að bandalaginu, náist um það samstaða meðal aðildarríkja NATO. Ráðherra ítrekaði mikilvægi náinna samskipta við Georgíu og Úkraínu, og lýsti yfir stuðningi við beiðni Svartfjallalands og Bosníu-Hersegovínu um nánari tengsl við NATO. Ráðherra hvatti til þess að bæði NATO og ESB haldi góðum tengslum við Serbíu.

Í umræðum um Afganistan ítrekaði utanríkisráðherra þau órofatengsl sem eru á milli friðargæslu, góðrar stjórnsýslu og efnahagsuppbyggingar, og lagði þunga áherslu á mikilvægi heimamanna í öllu uppbyggingarstarfi. Ráðherra kallaði eftir bættu samráði alþjóðastofnana í Afganistan undir forystu Sameinuðu þjóðanna. Greindi ráðherra frá því að í utanríkisráðuneytinu er nú unnið að gerð þriggja ára áætlunar um áframhaldandi stuðning við friðar- og uppbyggingarstarf í Afganistan þar sem megináherslan er á verkefni á sviði mannréttinda, þróunar og friðsamlegrar lausnar deilumála.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics