Hoppa yfir valmynd

Nr. 099, 2. nóvember 1999.Fræðimannastyrkir NATO

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 099

Fræðimannastyrkir Atlantshafsbandalagsins 2000-2002

Atlantshafsbandalagið mun að venju veita nokkra fræðimannastyrki til rannsókna og eru nú styrkir fyrir tímabilið 2000/2002 lausir til umsóknar. Umsækjendur þurfa að vera frá aðildarríkjum bandalagsins eða samstarfsríkjum þess. Gert er ráð fyrir að umsækjendur hafi lokið háskólanámi frá viðurkenndum háskóla en í undantekningartilvikum er veittur styrkur til þeirra sem ekki hafa lokið háskólagráðu.

Markmið styrkveitinganna er að stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á málefnum sem snerta Atlantshafsbandalagið og er stefnt að útgáfu á niðurstöðum rannsóknanna. Styrkirnir nema nú u.þ.b. 440.000 ísl. kr. (240.000 belgískum frönkum) fyrir einstaklinga en 460.000 ísl. kr. (250.000 belgískum frönkum) fyrir stofnanir. Ætlast er til þess að unnið verði að rannsóknum frá júní 2000 til 30. júní 2002.

Einnig er veittur sérstakur styrkur, Manfred Wörner styrkurinn, sem stofnað var til í minningu fyrrverandi aðalframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hér er um einn styrk að ræða að upphæð u.þ.b. 1,480.000 ísl. kr. (800.000 belgískir frankar). Styrkur þessi er veittur viðurkenndum fræðimönnum, rannsóknarstofnunum eða fólki með mikla starfsreynslu á fjölmiðlum.

Umsóknir um styrki þessa skulu berast alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins eigi síðar en 31. desember 1999. Ákvörðun um úthlutun styrkjanna mun liggja fyrir í júní árið 2000.

Alþjóðaskrifstofa utanríkisráðuneytisins veitir nánari upplýsingar um styrkina og lætur í té þar til gerð umsóknareyðublöð. Einnig er áhugasömum bent á heimasíðu Atlantshafsbandalagsins, www.nato.int, varðandi hagnýtar upplýsingar um Atlantshafsbandalagið, starf þess og sögu.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 2. nóvember 1999.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics