Hoppa yfir valmynd

Loftferðasamningur við Egyptaland áritaður

Loftferðasamningur milli Íslands og Egyptalands var áritaður í Kaíró þann 18. júní. Er þetta fyrsti loftferðasamningurinn milli ríkjanna og hefur þegar tekið gildi til bráðabirgða en stefnt er að formlegri undirritun við fyrsta tækifæri.

Samninginn árituðu Helgi Ágústsson, sendiherra, og Nagy Saleh, vararáðuneytisstjóri flugmálaráðuneytis Egyptalands. Í samninganefnd Íslands um gerð loftferðasamningsins voru af hálfu Íslands auk Helga þau Ástríður Scheving Thorsteinsson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, og Hrafn Þorgeirsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs flugfélagsins Jetx/Primera.

Í samningnum felast grunn flugréttindi fyrir flugrekendur ríkjanna. Samningurinn tekur til áætlunarflugs milli ríkjanna án takmarkana á flutningsmagni, en með takmörkunum á tíðni fluga til tiltekinna áfangastaða í Egyptalandi en ótakmarkaða tíðni á vinsæla ferðamannastaði. 

Samningurinn við Egyptaland styrkir möguleika íslenskra flugrekenda sem hafa sinnt og vilja sinna verkefnum í þessum heimshluta.

 



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics