Hoppa yfir valmynd

Kjörin næst æðsti stjórnandi Feneyjanefndar

dr.  Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir og Gianni Buquicchio - mynd
Dr. Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir hefur kjörin næst-æðsti stjórnandi Feneyjanefndar Evrópuráðsins (nefndar Evrópuráðsins um lýðræði með lögum). Á aðalfundi nefndarinnar nú í desember var Herdís kjörin fyrsti varaforseti nefndarinnar en hún hafði í tvígang verið kjörin ein þriggja varaforseta hennar.

„Feneyjanefndin er ráðgefandi aðili Evrópuráðsins um stjórnskipuleg málefni og gætir áhrifa hennar langt út fyrir raðir þess. Hlutverk Feneyjanefndar er að ráðleggja aðildarríkjum og aðstoða þau við aðlaga löggjöf og stofnanir til samræmis við evrópsk og alþjóðleg viðmið á sviði lýðræðis, mannréttinda og réttarríkis. Mannréttindadómstóll Evrópu, sem og æðstu dómstólar aðildarríkja, hafa vitnað til álita nefndarinnar í tugum dómsmála undanfarin ár.

Aðild að Feneyjanefnd eiga 61 ríki, þar af öll 47 aðildarríki Evrópuráðsins auk Bandaríkjanna, Brasilíu, Chile, Perú, Mexíkó, Ísraels, Suður-Kóreu, Alsírs, Marokkó, Túnis og nokkurra ríkja í Mið-Asíu.

Í nefndinni eiga sæti lögfræðingar skipaðir af aðildarríkjum en sem starfa sjálfstætt og óháð þeim. Forseti nefndarinnar er Ítalinn Gianni Buquicchio sem hefur verið forseti frá 2009.

Herdís var skipuð aðalfulltrúi Íslands í Feneyjanefnd 2010 og hefur gegnt störfum fyrir nefndina síðan bæði sem sérfræðingur á sviði mannréttinda og stjórnskipunar og undanfarin ár sem varaforseti í samskiptum við aðildarríkin. Hún var fyrst kjörin ein þriggja varaforseta 2013 og sú eina sem var endurkjörin aftur 2015.

Herdís er doktor í lögum og var fyrsti prófessorinn sem skipaður var lagadeildina á Bifröst. Hún var forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga 2009-2013 og sat í stjórn ERA, evrópsku lagaakademíunnar í Trier 2012-2015.

Sjá frétt á heimasíðu Feneyjanefndar Evrópuráðsins: 

Tags

Heimsmarkmið - mynd

Heimsmarkmiðin

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics