Hoppa yfir valmynd

Merkur áfangi í samskiptum Íslands og Kína: gagnkvæm viðurkenning háskólanáms

Frá fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Chen Baosheng menntamálaráðherra Kína í Peking. - mynd
Menntamálaráðherrar Íslands og Kína skrifuðu í fyrsta sinn undir samning um gagnkvæma viðurkenningu háskólanáms milli landanna. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Chen Baosheng menntamálaráðherra Kína áttu fund Peking í dag og ræddu þar meðal annars um aukið samstarf ríkjanna á sviði menntamála.

„Þessi samningur markar tímamót fyrir bæði íslenska og kínverska námsmenn. Samningurinn verður til þess að auðvelda til muna nemendaskipti milli landanna og ég bind vonir við að fleiri nemendur beggja ríkja skoði þá valkosti sem bjóðast í íslenskum og kínverskum háskólum,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Kína hefur gert hliðstæða samninga við rúmlega 50 önnur ríki, þar á meðal við hin Norðurlöndin og hafa þeir stuðlað að auknu aðgengi og flæði milli háskólastofnana þeirra. Rúmlega 30 kínverskir námsmenn stunda nú nám á Íslandi en um 30 Íslendingar stunda nám í Kína á ári hverju. Íslenskir háskólar eiga þegar í margvíslegu samstarfi við kínverska háskóla og hefur Háskóli Íslands meðal annars gert samstarfssamninga um nemendaskipti við fimmtán háskóla í Kína.

Ráðherrarnir ræddu einnig mikilvægi tungumálasamstarfs og sóknarfæri í því samhengi. Íslenskukennsla hefur verið við Alþjóðaháskólann í Peking frá árinu 2006 og mikill áhugi og aðsókn er að námsleið í kínversku sem í boði er við Háskóla Íslands.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics