Hoppa yfir valmynd

Menningarkynning í Moskvu

Í tilefni af þátttöku íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í heimsmeistaramótinu í Rússlandi verða skipulagðir menningarviðburðir í Moskvu. Rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson tekur þátt í ævintýralegri barnamenningardagskrá í bókasafni erlendra fræða, föstudaginn 15. júní og verður þar með sögusmiðjur fyrir rússnesk börn og fjölskyldur. Ævar er einnig meðal þátttakenda í Söguboltanum, samstarfsverkefnin barnabókahöfunda, mennta- og menningarmálaráðuneytis og RÚV, sem íslenskir krakkar hafa fylgst með nú í vor. Þar eru tvinnaðar saman tvær ástríður íslensku þjóðarinnar, bókmenntir og fótbolti, en framhald verður á því verkefni í haust.

Sama kvöld, austur í Moskvu, verða tónleikar þar sem fram koma annars vegar Emilíana Torrini og hljómsveitin The Colorist og hins vegar Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur. Tónleikarnir eru skipulagðir í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Sound Up Russia, sem einnig mun gangast fyrir frekari kynningu á íslenskri tónlist í Rússlandi og ÚTON, Útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir fara fram í Kyndiklefanum (Бойлерная, Хлебозавод №9), fyrrum brauðverksmiðju sem nú hefur fengið nýtt hlutverk sem viðburðastaður fyrir fjölbreytta listviðburði.

„Nú þegar augu svo margra beinast að Íslandi – í kjölfar þessa frábæra árangurs íslenska karlalandsliðsins – gefst okkur kærkomið tækifæri til að kynna íslenska menningu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Við leggjum sérstaka áherslu á bókmenntir og tónlist að þessu sinni – og ég er viss um að þetta verður góður upptaktur að auknum menningarsamskiptum.“

Hluti þeirrar fjárveitingar sem ríkisstjórnin ráðstafaði í þetta verkefni fer í að skipuleggja læsisverkefnið Söguboltann, sem miðar að ungum áhorfendum og lestrarhestum hér heima, en menningarkynningin í Moskvu er miðuð að þarlendum markhópum.

Sendiráð Íslands víða um Evrópu gangast einnig fyrir ýmiskonar viðburðum í tengslum við þátttöku Íslands á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu, þar á meðal í Osló, Stokkhólmi, Berlín og London.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics