Hoppa yfir valmynd

Nr. 002, 20. janúar 2000. Viðtalstímar sendiherra.

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 002


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands þegar þeir eru staddir hérlendis til þes að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.

Ingimundur Sigfússon, sendiherra Íslands í Þýskalandi, verður til viðtals í ráðuneytinu föstudaginn 28. janúar kl. 8-10 f.h. eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Austurríkis, Króatíu, Sviss og Ungverjalands.

Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar í síma 560-9900.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 20. janúar 2000.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics