Hoppa yfir valmynd

Forsætisráðherrar Íslands og Eistlands funduðu í dag

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands og Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands og Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, funduðu í ráðherrabústaðnum í hádeginu í dag.

Ráðherrarnir ræddu tvíhliða samskipti og samstarf ríkjanna almennt, þ.m.t. efnahagsmál, netöryggismál og rafrænar lausnir, loftslagsmál, jafnréttismál og svæðisbundið samstarf ríkjanna. Ráðherrarnir fóru jafnframt yfir þróun mála í Evrópu að því er snýr að Evrópusambandinu, EFTA, EES-samningnum og Brexit. Þá ræddu ráðherrarnir komandi leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Við áttum mjög góðan og árangursríkan fund. Við fórum yfir sögu samskipta þjóðanna tveggja og rifjuðum auðvitað upp þegar Íslendingar lýstu yfir stuðningi við sjálfstæði Eistlands árið 1991. Samskiptin hafa verið afar góð og við viljum treysta þau enn frekar í náinni framtíð. Við getum lært heilmargt hvort af öðru, til dæmis getum við Íslendingar horft til tæknilausna í stjórnsýslu og stjórnmálum og netöryggismála sem Eistar standa mjög framarlega í. Við ræddum svo jafnréttismál sérstaklega sem við vorum sammála um að þyrftu að vera á oddinum í allri stefnumótun stjórnvalda.“

Jüri Ratas fundar einnig með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, og Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis, í heimsókn sinni hér á landi. Þá hitti ráðherrann Eistlendinga sem búsettir eru hér á landi og bauð hann til móttöku í Norræna húsinu í tilefni af 100 ára afmæli sjálfstæðis Eistlands síðdegis og þar ávörpuðu hann og Katrín Jakobsdóttir samkomuna.


  • Meðfylgjandi fréttamynd nr 1

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics