Hoppa yfir valmynd

Breytingar í hópi sendiherra

Utanríkisráðherra hefur skipað Grétu Gunnarsdóttur, sviðsstjóra alþjóða- og öryggissviðs, Þóri Ibsen, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu, og Sigríði Önnu Þórðardóttur, fyrrverandi ráðherra og alþingismann, sendiherra í utanríkisþjónustunni. Skipun Grétu og Þóris miðast við 15. þessa mánaðar og skipun Sigríðar Önnu miðast við 1. júlí nk. Einn sendiherra mun láta af embætti á þessu ári og fyrir liggur að á næsta ári muni fimm til sjö sendiherrar til viðbótar láta af embættum.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics