Hoppa yfir valmynd

Loftferðasamningur við Líbanon

              Hinn 13. desember sl. urðu samninganefndir Íslands og Líbanon ásáttar um texta loftferðasamnings milli landanna, sem felur í sér víðtæk gagnkvæm réttindi til farþega-, vöru- og póstflutninga, ýmist í beinu flugi eða flugi sem tengist öðrum löndum.  Samningurinn verður formlega undirritaður síðar, en samkomulag er um að ákvæðum hans verði fylgt í reynd uns að því kemur.

             

              Efni samningsins er hagstætt íslenskum flugfélögum og hafa bæði flugmálayfirvöld í Líbanon og flugfélagið Middle East Airlines mikinn áhuga á að íslensku flugfélögin auki flug sitt til og um Beirút. Flugmálastjóri Líbanon, dr. Hamdi Chaouk, sem er bæði flugmálastjóri og yfirmaður flugstöðvarinnar í Beirút, var formaður samninganefndar Líbanon.  Hét hann íslenskum flugfélögum allri fyrirgreiðslu, sem unnt er að láta í té, til þess að þau geti nýtt sér viðskiptatækifæri í þessum heimshluta á grundvelli samningsins.

 

              Samningaviðræðurnar fóru fram í Beirút og tóku af Íslands hálfu þátt í þeim Sverrir H. Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Líbanon með búsetu í London, formaður, Ástríður S. Thorsteinsson, lögfræðiráðunautur Flugmálastjórnar og Hrafn Þorgeirsson yfirmaður stöðvastjóra Icelandair.

 



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics