Hoppa yfir valmynd

Íþrótta- og æskulýðsstarf: Umfangsmiklar stuðningsaðgerðir í bígerð

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, og Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þess efnis að ráðist verði í aðgerðir til að koma til móts við íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins vegna þeirrar röskunar sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á starf þeirra. Þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi hefur fjölþætt gildi. Í ljósi þess þykir mikilvægt að öll börn eigi þess kost að stunda íþróttir og að margar ólíkar íþróttagreinar séu í boði svo öll börn geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Hið sama gildir um skipulagt íþróttastarf eldri hópa.

Í aðgerðum stjórnvalda verður stefnt á að útvíkka úrræði Vinnumálastofnunar þannig að tryggt verði að í þeim tilvikum sem íþróttafélagi eða samstarfsaðilum ÍSÍ er gert að láta af starfsemi sinni vegna sóttvarna geti félagið sótt um styrki vegna launagreiðslna til starfsmanna sem ekki geta sinnt starfi sínu á því því tímabili sem sóttvarnaaðgerðir standa yfir enda hafi önnur úrræði stjórnvalda ekki gagnast í þessum tilgangi. Einnig verði þessum aðilum gert kleift að sækja um styrki vegna verktakakostnaðar af sömu ástæðum. Styrkfjárhæðir skuli verða sambærilegar og önnur úrræði stjórnvalda hafa innifalið og gert verði ráð fyrir að þetta muni gilda frá 1. október sl.

Þá verður íþrótta- og æskulýðsfélögum, ásamt sambandsaðilum ÍSÍ, gert kleift að sækja um sérstaka styrki vegna tekjufalls á tímabilinu 1. júní sl. til 1. október sl. Einnig verður þessum aðilum gert kleift að sækja um styrki vegna verktakakostnaðar frá 1. október sl. og þar til starfsemi hreyfingarinnar kemst í eðlilegt horf. Orsakir þessa tekjufalls og verktakagreiðslna þurfa að hafa verið vegna sóttvarna á því tímabili sem sóttvarnaaðgerðir standa yfir. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands mun sjá um umsýslu aðgerðarinnar.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra:
„Þátttaka barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur góð og þroskandi áhrif á þau. Það er mikilvægt að öll börn eigi þess kost að stunda íþróttir en ljóst er að þær sóttvarnaraðgerðir sem við höfum þurft að grípa til hafa haft mikil áhrif á starfsemi íþróttafélaga og þykir því gríðarlega brýnt að við ráðumst í mótvægisaðgerðir, ekki síst í því skyni að tryggja að sem minnstar raskanir verði á íþróttastarfi barna til lengri tíma litið. Það er skynsamlegt fyrir okkur sem samfélag að verja fjármunum í íþróttahreyfinguna sem gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að lýðheilsu þjóðarinnar. Sú fjárfesting skilar sér margfalt fyrir samfélagið allt til lengri tíma.”

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Það er mér sönn ánægja að geta kynnt góðar fréttir á þessum farsóttartímum. Börnin okkar blómstra í fjölbreyttu íþrótta- og æskulýðsstarfi um allt land, og við verðum að standa vörð um það starf. Þetta er eitt mikilvægasta veganesti sem við sem samfélag gefum börnum og ungmennum þessa lands og við megum vera stolt af því að fjárfesta rétt. Ég bind miklar vonir við að þessar aðgerðir stjórnvalda tryggi að íþrótta- og æskulýðsstarf geti verið með eðlilegum hætti þegar þetta ástand er yfirstaðið.”

Endanlegar útfærslur á tillögunum verða unnar í samstarfi við íþróttahreyfinguna og gert er ráð fyrir að útfærslan liggi fyrir eigi síðar en 10. nóvember 2020.


Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics