Hoppa yfir valmynd

Sex sveitarfélög fá stuðning vegna hruns í ferðaþjónustu

Frá Mývatni - myndHugi Ólafsson

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti ríkisstjórn í morgun skiptingu 150 milljóna króna fjárveitingar til sex sveitarfélaga vegna hruns í ferðaþjónustu í kjölfar Covid-19. Sveitarfélögin Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Skútustaðahreppur fá hvert um sig úthlutað 32 m.kr. en Bláskógabyggð, Rangárþing eystra og Sveitarfélagið Hornafjörður fá hvert um sig 18 m.kr. 

Alþingi samþykkti í vor 150 m.kr. framlag á fjáraukalögum 2020 til að styðja við atvinnulíf og samfélag vegna hruns í ferðaþjónustu í sveitarfélögunum sex. Markmið aðgerðanna er að skapa betri grundvöll fyrir fjölbreyttara atvinnulíf til lengri tíma og styrkja stoðir þeirra og stuðla að nýsköpun. 

Byggðastofnun birti í maí sl. samantekt með greiningu á áhrifum hruns ferðaþjónustu á sveitarfélög. Greiningin gaf vísbendingar um hvaða sveitarfélög og svæði kynnu að standa veikast vegna tímabundins hruns í ferðaþjónustu. Niðurstaða Byggðastofnunar var sú að sveitarfélögin sex stæðu verst að vígi eftir hrun ferðaþjónustunnar í vor.

Tvö teymi með fulltrúum frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Byggðastofnun og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra annars vegar og Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga hins vegar fengu það verkefni að greina nánar stöðu og áskoranir sveitarfélaganna sex. Teymin hafa nú skilað greinargerð ásamt tillögum um skiptingu fjárveitingarinnar á fjáraukalögum. Í greinargerðinni er fjallað um lýðfræðilega þróun og atvinnulíf á svæðunum en atvinnuleysi í þessum sveitarfélögum í júnílok var frá 13%-34% en meðaltal atvinnuleysis á landinu öllu var um 10%.

Í greinargerðinni er staða sveitarfélaganna sex metin innbyrðis. Þar er metið hlutfall ferðaþjónustu af atvinnulífi í hverju sveitarfélagi, möguleikar á annarri vinnusókn og framkomin áhrif eins og atvinnuleysi og lýðfræðileg samsetningu íbúa. Þegar horft var til þessara þátta var niðurstaðan sú að Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Skútustaðahreppur stæðu verst að vígi en að Bláskógabyggð, Rangárþing eystra og Sveitarfélagið Hornafjörður gætu brugðist betur við áhrifum faraldursins. Í þremur fyrrnefndu sveitarfélögunum væri hlutdeild ferðaþjónustunnar af atvinnulífi svæðisins mjög há, atvinnuleysi mikið og takmarkaðir möguleikar á annarri vinnusókn vegna fjarlægðar frá stærri vinnusóknarsvæðum. Í þremur síðarnefndu sveitarfélögunum væri atvinnulíf fjölbreyttara. Í Sveitarfélaginu Hornafirði væri t.d. öflugur sjávarútvegur á Höfn, Rangárþing eystra í útjaðri vinnusóknarsvæðis Árborgar og Bláskógabyggð á eða alveg við vinnusóknarsvæði Árborgar. 

Samráðsteymin tvö munu halda áfram vinnu sinni með sveitarfélögunum m.a. til að fylgja eftir framkvæmd tillagna og öðrum ábendingum sem fram komu hjá sveitarfélögunum.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics