Hoppa yfir valmynd

Ráðherra snýr heim í dag

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra snýr heim frá Stokkhólmi í dag en hún hefur verið þar í rúma viku í meðferð vegna höfuðmeins. Læknar á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi staðfestu í morgun að um góðkynja æxli sé að ræða en mestur hluti þess fjarlægður í aðgerð í síðustu viku.

Ingibjörg Sólrún mun verða frá vinnu enn um sinn á meðan hún jafnar sig að fullu eftir aðgerðina en ekki er talið nauðsynlegt að hún leggist inn á sjúkrahús nú við heimkomu eins og tilkynnt hafði verið.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics