Hoppa yfir valmynd

Ríkisstjórnin styrkir verkefni í tengslum við lítil eyþróunarríki

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og utanríkisráðherra, að veita 10 milljónum kr. af ráðstöfunarfé ríkistjórnarinnar til Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna sem varið verði til verkefna í tengslum við lítil eyþróunarríki (Small Islands Developing States). 

„Megin tilgangur þessa framtaks er að undirstrika mikilvægi hafsins fyrir afkomu þjóða en jafnframt er tækifærið notað til þess að hvetja til aukins fjármagns og nýrra verkefna í tengslum við verndun hafsins. Við Íslendingar höfum stutt þetta framtak enda ljóst að fáar þjóðir eiga eins mikið undir lífríki hafsins,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra.

Þess er vænst að verkefni Sjávarútvegsskólans, sem tengist þessu vilyrði, geti hafist í júlí.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics