Hoppa yfir valmynd

Ríkisstofnanir vel í stakk búnar fyrir fjarvinnu starfsfólks

Nýtt skrifstofuumhverfi ríkisins, Microsoft 365, reynist vel við að tryggja að starfsfólk ríkisins geti á næstunni sinnt störfum sínum að heiman í ljósi Covid-19 faraldursins og hefur í för með sér að flestar stofnanir þurfa engar viðbótarfjárfestingar til þess að starfsmenn geti unnið heiman frá. Þar gegnir kerfið Teams lykilhlutverki, sem heldur utan um vinnu verkefnahópa, samvinnu í skjölum og fjarfundi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur í samstarfi við Micorosoft á Íslandi og birgja undirbúið aðgerðir til að aðstoða stofnanir við að koma upp Teams. Á nýrri vefsíðu eru leiðbeiningar fyrir stofnanir um hvernig þær geti best nýtt sér þá kosti sem í boði eru, þar á meðal um aðstoð sem hægt er að fá. Þar er jafnframt að finna ýmis fræðslumyndbönd og öryggisatriði sem hafa ber í huga við fjarvinnu.

Góð ráð um fjarvinnu og fjarfundi

Kjara- og mannauðssýsla ríkisins hefur tekið saman góð ráð fyrir starfsfólk og stjórnendur þegar unnið er að heiman og fjarfundir haldnir, sem er að finna í meðfylgjandi skjölum.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics