Hoppa yfir valmynd

Gunnar Bragi fundar með aðalframkvæmdastjóra UNESCO

Irina Bokova og Gunnar Bragi

Á fundi með Irina Bokova, aðalframkvæmdastjóra Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í dag, lagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra áherslu á mikilvægi menntunar í þróunarsamvinnu Íslands, einkum menntun kvenna og stúlkna. Hann sagði Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna gegna mikilvægu hlutverki í þróunarsamvinnunni, og vakti jafnframt athygli á árangursríku starfi Jarðhitaskólans, Sjávarútvegsskólans og Landgræðsluskólans. Gunnar Bragi sagði Íslendinga hafa mikla reynslu og sérfræðiþekkingu á þessum sviðum sem mikilvægt væri að nýta, m.a. með því þjálfa og tengja námsmenn og sérfræðinga víðs vegar að úr heiminum og efla rannsóknir á þessum sviðum.

Þá sagði Gunnar Bragi  það skipta miklu máli fyrir Ísland og Íslendinga að Þingvellir og Surtsey væru á heimsminjaskrá. Það styrkti menningarlegt og náttúrufræðilegt gildi þessara staða og efldi um leið vitund almennings á Íslandi um starfsemi UNESCO.

Gunnar Bragi þakkaði aðalframkvæmdastjóranum fyrir stuðning hennar við Alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands, en stofnunin hlaut í nóvember 2011 samþykki til að starfa undir formerkjum UNESCO. Irina Bokova hrósaði framlagi Vigdísar Finnbogadóttur til UNESCO á fundinum, en hún er velgjörðarsendiherra UNESCO fyrir tungumál og hefur um árabil gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir stofnunina.

Gunnar Bragi lagði einnig áherslu á mikilvægi þess að hagræða í starfsemi alþjóðastofnana og aðlaga þær að breyttum tímum, en Irina Bokova hefur undanfarin ár stjórnað miklu umbótaferli í UNESCO sem hófst í kjölfar heildarúttektar sem gerð var á starfsemi og rekstri stofnunarinnar 2010. Rætt var um mikilvægi tækninnar og áhrif samfélagsmiðla á öllum starfssviðum UNESCO.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics