Hoppa yfir valmynd

Endurskipulagning á Ratsjárstofnun

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 120/2007

Utanríkisráðherra hefur falið Ellisif Tinnu Víðisdóttur, sem gegnt hefur starfi aðstoðarlögreglustjóra á Suðurnesjum, að gegna hlutverki breytingastjóra innan Ratsjárstofnunar með starfshópi utanríkisráðuneytisins um yfirtöku stofnunarinnar. Mun hún leiða yfirfærslu á verkefnum og endurskipulagningu á starfi stofnunarinnar. Ellisif Tinna hefur undanfarin ár starfað sem staðgengill sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, og sem aðstoðarlögreglustjóri við lögregluembættið á Suðurnesjum frá síðustu áramótum.

Dómsmálaráðherra hefur í ljósi ofangreinds veitt Ellisif Tinnu tímabundið leyfi frá störfum.

Utanríkisráðherra mun á næstu vikum leggja fram í ríkisstjórn og á Alþingi frumvarp til laga um verkefni Ratsjárstofnunar. Staða forstjóra nýrrar stofnunar verður auglýst í kjölfar afgreiðslu frumvarpsins frá Alþingi.



Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics