Hoppa yfir valmynd

Álagning opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2018

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2018. Álögð gjöld eru samtals 193,8 ma.kr. sem er hækkun um 6,9 ma.kr. á milli ára, en breytingar einstakra skatttegunda eru bæði til hækkunar og lækkunar. Stærstu breytingarnar snerta tryggingagjald, sem hækkar um 8,8 ma.kr. og tekjuskatt lögaðila, sem lækkar um 2,5 ma.kr. Rétt er þó að hafa í huga að hér er um að ræða svokallaða frumálagningu sem getur tekið ákveðnum breytingum síðar.

Lögaðilum á grunnskrá fjölgar um 1.390, eða 3,1% milli ára, og eru nú 45.492. Aftur á móti fækkar félögum sem greiða tekjuskatt um 286, eða 1,6% milli ára. Skil framtala þriðja árið í röð voru mjög góð og hafa í raun aldrei verið betri en síðustu þrjú árin. Færri sæta því áætlunum en verið hefur. Sá árangur leiðir til færri kæra og endurákvarðana og skapar meiri vissu um að álagningin skili sér í ríkissjóð.

 
 

Tekjuskattur lögaðila

Álagður tekjuskattur er 72,4 ma.kr. og lækkar sem fyrr segir um 2,5 ma.kr. eða 3,4% milli ára ásamt því að gjaldendum fækkar um 286. Lækkunin skýrist m.a. af lægri álagningu tekjuskatts á fjármálafyrirtæki en í fyrra. Þrátt fyrir það að ef skoðuð er skipting álagðs tekjuskatts eftir atvinnugreinum þá er fjármála- og vátryggingastarfsemi, eins og oft áður, með hæstu álagninguna af einstökum atvinnugreinum eða 22,5%. Hlutfall hennar er þó lægra en í álagningunni 2018. Því næst kemur heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum með um 14,3% af heildarálagningunni og hækkar það hlutfall lítillega á milli ára.

 

Fjármagnstekjuskattur

Lögaðilar bera almennt ekki fjármagnstekjuskatt. Þó skulu þeir lögaðilar sem eru undanþegnir almennri tekjuskattskyldu greiða fjármagnstekjuskatt, eins og sveitarfélög og ýmis sjálfseignarfélög. Álagður fjármagnstekjuskattur á þessa lögaðila nemur 1.776 m.kr. sem er 242 m.kr. hærri fjárhæð en á árinu 2018, eða hækkun um 15,8% milli ára.

Útvarpsgjald

Álagt útvarpsgjald á lögaðila nemur 735 m.kr. sem er 5,7% hækkun milli rekstraráranna 2017 og 2018, en á hvern gjaldanda hækkaði það úr 17.100 kr. í 17.500 kr., eða 2,3%. Þá fjölgaði gjaldendum þess um 1.336 sem er í góðu samræmi við fjölgun lögaðila á grunnskrá.

Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki („bankaskattur“)

Samkvæmt gildandi lögum er skatthlutfall sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki 0,376% og er gjaldstofninn heildarskuldir viðkomandi lögaðila sem eru yfir 50 ma.kr. í lok hvers árs. Álagður bankaskattur nemur nú um 10,6 ma.kr. og hækkar um tæplega 1,2 ma.kr. á milli ára. Fjórir lögaðilar greiða þennan skatt líkt og á síðasta ári.

Fjársýsluskattur

Álagning fjársýsluskatts, sem er innheimtur í staðgreiðslu nemur 3,3 ma.kr. og nær til 127 lögaðila. Skattstofninn er allar tegundir launa eða þóknana hjá fjármála- og tryggingafyrirtækjum, þar með talið bónusgreiðslur ef einhverjar eru. Skatt¬hlutfallið var óbreytt frá fyrra ári, 5,5% og hækkaði álagður skattur um 2,2% á milli ára.

Sérstakur fjársýsluskattur

Sérstakur 6% fjársýsluskattur leggst á hagnað fjármálafyrirtækja, þ.m.t. tryggingafélaga, sem er umfram 1 ma.kr. Samkvæmt álagningartölum ríkisskattstjóra nemur hann um 2,8 ma.kr. á þessu ári og lækkar um 0,9 ma.kr. frá fyrra ári, sem rímar við lækkun álagðs tekjukatts á milli ára hjá þessari atvinnugrein. Sjö fyrirtæki greiða þennan skatt í ár samanborið við átta árið 2018.

Tryggingagjald

Álagning tryggingagjalds á launagreiðslur ársins 2018 nemur 102,1 ma.kr. samanborið við 93,3 ma.kr. árið áður og er það hækkun um 9,4% á milli ára. Um 98% af álögðu gjaldi hafa þegar verið innheimt í staðgreiðslu. Þá fjölgaði gjaldendum tryggingagjalds um 696, eða 3,2%. Gjaldhlutföll tryggingagjalds voru óbreytt milli áranna 2017 og 2018 en gjaldstofninn breikkaði vegna síðari tveggja áfanga hækkunar mótframlags launagreiðenda í lífeyrissjóð um mitt árið 2017 og 2018. Framlagið er hluti af kjörum launþega og ber því tryggingagjald.

Afsláttur vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar

Heildarafsláttur vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar nemur alls 3.577 m.kr. samkvæmt álagningunni í ár samanborið við 2.749 m.kr. í fyrra. Viðmið styrkhæfs kostnaðar fyrir rannsóknir og þróun innan fyrirtækis á árinu 2018 var 300 m.kr. og vegna aðkeyptrar rannsókna- og þróunarvinnu 450 m.kr. Afslátturinn gengur upp í álagðan tekjuskatt, ef fyrirtækið er með hagnað en er annars útborganlegur að fullu. Endurgreiðslan í ár er að upphæð 2.969 m.kr. og skuldajöfnunin að upphæð 608 m.kr. samanborið við 2.124 m.kr. endurgreiðslu árið 2018 og 625 m.kr. skuldajöfnun. 160 lögaðilar eiga rétt á afslættinum í ár en þeir voru 138 fyrir ári síðan eins og fram kemur í eftirfarandi töflu.

 

Árétta skal að þessar tölur miðast við frumálagningartölur og gætu þær breyst ef til koma kærur og endurúrskurðir.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics