Hoppa yfir valmynd

Hvatt til notkunar vistvænna samgöngumáta með lægri álögum

Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta (ívilnanir vegna vistvænna ökutækja o.fl.). Verði tillögurnar samþykktar koma þær m.a. til með að auðvelda fólki kaup á rafmagnsreiðhjólum og hefðbundnum reiðhjólum. Hámark niðurfellingar virðisaukaskatts af rafmagnsreiðhjólum er 96 þúsund krónur og af hefðbundnum reiðhjólum 24 þúsund samkvæmt tillögunum sem þýðir að að hægt verður að kaupa rafmagnsreiðhjól sem kostar 400 þúsund krónur án þess að greiða virðisaukaskatt og reiðhjól sem kostar 100 þúsund krónur án þess að virðisaukaskattur komi til.

 

Endurgreiddur virðisaukaskattur vegna hleðslustöðva

Frumvarpinu er einnig ætla að greiða fyrir uppsetningu hleðslustöðva í íbúðarhúsnæði hér á landi með fullri endurgreiðslu virðisaukaskatts, bæði af vinnu og kaupum á hleðslustöðinni sjálfri, sem sett er upp í eða við íbúðarhúsnæði, s.s. í fjöleignarhúsum. 

Undanþága fyrir vistvæna bílaleigubíla

Tillögurnar koma einnig til með að hafa áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja. Má þar nefna undanþágu á virðisaukaskatti vegna útleigu vistvænna bílaleigubíla sem nýtist viðskiptavinum þeirra og undanþágu á virðisaukaskatti vegna kaupa á vistvænum almenningsvögnum. Þá mun flýtifyrning nýorkubíla geta nýst öllum atvinnurekstraraðilum.

Tillögur frumvarpsins eiga m.a. rót sína að rekja til stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, aðgerðaráætlunar stjórnvalda um orkuskipti frá 2017 og aðgerðaráætlunar stjórnvalda í loftlagsmálum fyrir árin 2018-2030. Lagt er til að ívilnanirnar verði festar í sessi til nokkurs tíma.

Helstu efnisatriði frumvarpsdraganna eru eftirfarandi:

  • Að gildistími virðisaukaskattsívilnana fyrir rafmagns- og vetnisbifreiðar verði framlengdur til 31. desember 2023.
  • Að fjárhæðarmörk heimildar til niðurfellingar virðisaukaskatts og undanþágu frá skattskyldri veltu við kaup á rafmagns- eða vetnisbifreið verði hækkuð.
  • Að virðisaukaskattsívilnun fyrir tengiltvinnbifreiðar falli niður eftir 31. desember 2020.
  • Að fjöldaviðmið rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiða sem njóta virðisaukaskattsívilnana verði hækkað.
  • Að heimilt verði að fella niður virðisaukaskatt eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki vegna innflutnings bifhjóls sem knúið er rafmagni eða gengur fyrir vetni, létt bifhjóls sem knúið er rafmagni eða reiðhjóls.
  • Að núverandi heimild til að endurgreiða byggjendum og eigendum íbúðarhúsnæðis 60% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna við uppsetningu hleðslustöðva í eða við íbúðarhúsnæði verði aukin upp í 100%.
  •  Að byggjendum og eigendum íbúðarhúsnæðis verði veitt heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa á hleðslustöðvum í eða við íbúðarhúsnæði.
  • Að útleiga handhafa leyfis til að reka ökutækjaleigu, eignaleigu eða fjármögnunarleigu á vistvænum bifreiðum verði undanþegin virðisaukaskattsskyldri veltu.
  • Að heimilt verði við innflutning eða sölu á hópbifreið í almenningsakstri sem notar eingöngu metan, metanól, rafmagn eða vetni sem orkugjafa, að fella niður virðisaukaskatt eða telja hann til undanþeginnar veltu.
  • Að atvinnurekstraraðilum verði heimilað að fyrna að fullu á kaupári niður að niðurlagsverði eignar ökutæki sem nýta eingöngu metan, metanól, rafmagn eða vetni að því gefnu að nýorkuökutæki sé að öllu leyti nýtt í skattskyldri starfsemi lögaðila eða sjálfstætt starfandi einstaklings.

Hægt er að senda inn umsögn eða ábendingar um frumvarpsdrögin á samráðsgátt stjórnvalda til og með 12. nóvember nk.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics