Hoppa yfir valmynd

Íslensk samtímahönnun í Stokkhólmi

Screen-shot-2011-02-10-at-10.57.18Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr hefur vakið athygli á Hönnunarsýningunni Stockholm Furniture Fair og Stockholm Design Week  sem stendur fram til 12. febrúar.  Sýningin, sem er á vegum Hönnunarmiðstövar Íslands, kynnir brot af því besta á sviði hönnunar og arkitekúrs á Íslandi. 

Sendiráð Íslands í viðkomandi höfuðborgum eru bakhjarlar sýningarinnar og hafa aðstoðað við uppsetningu og kynningu á hverjum stað; í  Dansk Design Center í Kaupmannahöfn vorið 2010, á heimssýningunni í  Sjanghæ í Kína í september og í Peking í nóvember og nú í Stokkhólmi. Sendiráð Íslands þar í borg efnir ásamt Hönnunarmiðstöð á morgun til kynningarmótttöku fyrir fagaðila og blaðamenn innan ramma dagskrárinar Design Boost í Hönnunarhúsi Stokkhólms.

Sýningin hefur að geyma verk um 20 hönnuða sem valdir eru með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu, en nú sem aldrei fyrr er brýnt að vera sýnileg á alþjóða vettvangi og styrkja erlend menningar- og viðskiptatengsl.

Stockholm Furniture Fair kaupstefna ætluð fagfólki; framleiðendum og hönnuðum, en leikmönnum gefst einnig tækifæri til þess að skoða það sem þar er til sýnis, því opið er fyrir almenning laugardaginn 12. febrúar nk. frá kl. 09:00-17:00.

Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands, utanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis, Íslandsstofu og Hönnunarsjóðs Auroru.

Frekari upplýsingar um sýninguna og aðstandendur hennar er að finna hér:

 

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics