Hoppa yfir valmynd

Samningar Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarafurðir taka gildi 1. maí 2018

Samningar Íslands og Evrópusambandsins um viðbótarfríðindi í viðskiptum með landbúnaðarvörur annars vegar og um viðurkenningu og vernd landfræðilegra merkinga á landbúnaðarafurðum og matvælum hins vegar, sem undirritaðir voru árið 2015, munu öðlast gildi 1. maí 2018 en þá verður málsmeðferð ESB endanlega lokið.

„Þetta er fagnaðarefni fyrir íslenska neytendur og útflytjendur. Með samningunum myndast aukin sóknarfæri fyrir útflytjendur auk þess sem tollalækkanirnar munu auka vöruúrval og skila sér í vasa neytenda í gegnum lækkað matvöruverð,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Samningarnir fela í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum tollskrárnúmerum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum. Almennt gerir ESB slíkt hið sama. Niðurstaðan felur í sér að allir tollar á unnar landbúnaðarvörur eru felldir niður nema á jógúrt. Sem dæmi munu tollar falla niður á súkkulaði, pizzum, pasta, bökunarvörum o.fl. Auk þessa eru tollar felldir niður eða lækkaðir á óunnum landbúnaðarvörum eins og t.d. villibráð, frönskum kartöflum, útiræktuðu grænmeti o.fl.

Jafnframt er samkomulag um að báðir aðilar auki verulega tollfrjálsa innflutningskvóta, m.a. fyrir ýmsar kjöttegundir og osta og kemur aukningin til framkvæmda á tilteknum aðlögunartíma. Á móti fær Ísland verulega hækkun tollfrjálsra innflutningskvóta fyrir skyr, smjör og lambakjöt og nýja kvóta fyrir alifugla- og svínakjöt og ost.

Samhliða öðlast gildi samningur milli Íslands og ESB um viðurkenningu og vernd landfræðilegra merkinga á landbúnaðarafurðum og matvælum. Í meginatriðum felur samningurinn í sér að íslensk stjórnvöld og ESB skuldbinda sig til að vernda á yfirráðasvæði sínu afurðarheiti sem eru vernduð á yfirráðasvæði hins aðilans.
Hjálagt fylgja tenglar í samningana

Samningur um viðbótarfríðindi í viðskiptum með landbúnaðarvörur
Samningur um viðurkenningu og vernd landfræðilegra merkinga á landbúnaðarafurðum og matvælum

Tags

Heimsmarkmið - mynd

Heimsmarkmiðin

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics