Hoppa yfir valmynd

Fríverslunarsamningur myndi hafa jákvæð efnahagsáhrif á öllu EES

Mynd: Norska utanríkisráðuneytið/Kristin Enstad
Af fundi norrænna viðskiptaráðherra í Ósló

Viðræður Evrópusambandsins og Bandaríkjanna um fríverslunar- og fjárfestingasamning  bar hæst á fundi norrænna viðskiptaráðherra  sem Gunnar Bragi Sveinsson utanríksráðherra, sat í Ósló í morgun. Rætt var um efni viðræðnanna og hversu fljótt samið yrði og rætt sérstaklega um hagsmuni EFTA-ríkjanna, Íslands og Noregs, í þessu ferli. Ráðherrar voru sammála um að tækjust samningar, hefði það jákvæð efnahagsleg áhrif á öllu EES-svæðinu. Þá var lagt til að Norðurlöndin skoði hvernig þau geti í sameiningu farið í markaðsátak á stórum og vaxandi mörkuðum og var ákveðið að ræða nánar hvernig staðið yrði að þessu verkefni.

Ráðherrarnir fóru yfir þróun mála vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, og væntingar til ráðherrafundar stofnunarinnar sem haldinn verður í Indónesíu í desember.  Þeir voru hóflega bjartsýnir á að samningar náist um viðskiptaliprun og aukið svigrúm fyrir þróunarríki til útflutnings á landbúnaðarvörum.  Þá ræddu þeir einnig hvernig viðskiptasamningar framtíðarinnar gætu tekið mið af sífellt örari tækniþróun, t.d. varðandi netverslun.

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics