Hoppa yfir valmynd

Fitch hækkar langtímalánshæfiseinkunn ríkissjóðs í A-, horfur sagðar jákvæðar

Fitch hækkar langtímalánshæfiseinkunn ríkissjóðs í A-, horfur sagðar jákvæðar - myndMynd/Hugi Ólafsson

Matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði hækkað lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins á langtímaskuldbindingum í innlendri og erlendri mynd úr BBB+ í A-. Þá eru horfur sagðar jákvæðar. Batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt sterkum hagvexti eru helstu forsendur betri einkunnar.

Með hækkun Fitch er ríkissjóður aftur kominn í A-flokk hjá öllum þremur stærstu matsfyrirtækjum. Moody’s reið á vaðið í september 2016 með hækkun í A3. Standard & Poor‘s hækkaði lánshæfiseinkunnina í A- í janúar 2017 og síðan A í mars 2017.

Í tilkynningu fyrirtækisins segir að þættir sem gætu hver um sig eða allir saman leitt til hækkunar á lánshæfiseinkunn séu:

  • Þrautseigja þjóðarbúsins til þess að mæta ytri áföllum eftir afnám fjármagnshafta.
  • Áframhaldandi hagvöxtur án of mikils þjóðhagslegs ójafnvægis
  • Áframhaldandi lækkun skuldahlutfalla hins opinbera, studd af ábyrgri ríkisfjármálastefnu.

Þá segir að þar sem horfurnar eru jákvæðar búist Fitch ekki við framvindu sem væri líkleg til þess að leiða til lækkunar á lánhæfiseinkunn. Þó gætu eftirfarandi þættir, hver um sig eða allir saman, leitt til neikvæðrar breytingar á lánshæfismati:

  • Vísbendingar um ofhitnun hagkerfisins, til dæmis með víxlhækkun launa og verðlags, verðbólga umfram markmið, með neikvæðum áhrifum á efnahagsreikninga heimila og fyrirtækja.
  • Veikari ásetningur um að efla stöðu ríkisfjármála til meðallangs tíma.
  • Mikið útflæði fjármagns sem leiða myndi til ytra ójafnvægis og þrýstings á gengi krónunnar.

Fréttatilkynning Fitch Ratings

Tags

Contact us

Tip / Query
Spam
Please answer in numerics